Gamla bloggið okkar er komið í lag..Skutlan

Ef þið viljið frekar vera þar þá getum við alltaf fært okkur yfir?

hvað viljið þið gera?Óákveðinn

Reyna að vera duglegar að blogga!!Skutlan

Sælar elsku skvísurr,,, ég er að vona að það sé nú hægt að halda svolítilli hreyfingu á blogginu!
Ég skellti mér mér út að borða með vinnunni á föstudaginn og það var ekki meira né minna en The pörl... Mér fannst mjög gaman og hefði sennilega fundist aðalrétturinn æðislegur ef ég hefði ekki verið búin að borða 2 rétti, var sko í 4 rétta en auðvitað var þetta allt voða fínt og flott!!
Svo fengum við þær slæmu fréttir ég og Alla að dagmamman okkar lenti í bílslysi um helgina og fótbrotnaði, ég er búin að heyra um eitt bílsslys um helgina og það var í Bökkunum og þar ók fullur maður á kyrrstæðan bíl og einn farþeginn í kyrrstæða bílnum fótbrotnaði þannig maður er hræddur um að það hafi verið þeirra slys.. alveg hræðilegt hreint að lenda í svona. En dagfaðirinn slapp betur og ætlaði að reyna að opna á miðvikudaginn en ég sé samt ekki alveg að hann geti það greyið með stórslasaða konuGráta
En svona er víst lífið og slysin gera ekki boð á undan sér!!
Ég hringdi í innritunarfulltrúa leikskólanna og sagði að nú þyrfti bara eitthvað að fara að gerast, ég er því miður ásamt öðrum í þeirri stöðu að ég get ekki verið án daggæslu fyrir skinnið mitt svo að ég ætla að hringja aftur á morgun því hún sagðist ætla að fara beint í okkar mál og reyna að redda þessu sem allra fyrst!!
Veriði svo duglegar að blogga............
Það vita nú flest allir leyniorðið þannig að látiði það bara berast til þeirra sem ekki hafa fengið ..
LÖV STELLA

TysonSkutlan

Jæja skvísur þá vill ég segja ykkur að nú fer senn að líða að því að við fáum hann Tyson okkar en hann kemur til okkar næsta föstudag og gvuð hvað okkur hlakkar til. Við fórum að skoða hann í gær létum hann fá teppi og Elmar vildi endilega gefa honum bangsa en þetta mun hann koma með til okkar þegar hann kemur. við tókum nátturlega myndir og eru þær á síðunum hjá krökkunum endilega kikjið á þær.


Þetta er pabbi hans þannig að hann mun verða svona þegar hann verður stór


kv Hrabba

90's ???Skutlan

Þú ert 90´s kid ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]  (Baby? ) hahah

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið... ( það var sko AÐALsportið )

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar... ( ha? )

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið.. ( hahaha á ennþá nokkrar kassettur með blönduðum útvarpslögum..sama laginu kannski aftur og aftur og aftur:) )

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl ( játs! þegar það fylgdi jójó með coca cola.. og fanta og sprite :p )

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana... ( haha pónýhestarnir mar, átti póný hús og hesta og alles...meirað segja heila hárgreiðslustofu fyrir hestana )

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum.. (namm, þeir voru góðir ! )

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara (man þegar ég fékk fyrst einn slíkan, svona lítinn ferðaspilara..setti svo spólu í kassettutækið mitt og tengdi við ferðaspilarann svo ég gæti spilað upphátt :p )

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill... ( hahaha gulur, rauður, grænn eða blár? )

Þú áttir tölvugæludýr (já og mar þurfti að gefa því að éta og allt svo það dræpist ekki! )

...eða Furbie (  á hann ennþá:p held samt að hann sé batterýslaus greyið)

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir ( jiiiiiiii keypti seríuna í dk um daginn á dvd!!!!! og ekki má gleyma kærleiksbjarnabúningnum mínum, þegar ég var yngri átti ég sko allt sem tengdist kærleiksbjörnunum )

Þú safnaðir lukkutröllum ( jújú enda verið kölluð lukkutröll hrumpf )

Og áttir vasadiskó (og á það ennþá! )

Þú kannt Macarena dansinn utanað (hver kann það ekki?)

Þú veist af hverju 23 er kúl tala (  hell yeah, átti meirað segja körfuboltaspjöld sem ég bíttaði í gríð og erg, geymd í fallegri möppu )

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var.. (man meirað segja þegar sms varð fyrst vinsælt..það var ókeypis heilt sumar og það var sko ekki sparað sendingarnar skal ég segja ykkur)

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið (Maður var bara ekki maður með mönnum nema eiga eina slíka)

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!


Já ég var sko 90´s kid! sjett!

Alla sín :)

jæja jæja!!Skutlan

Ég er komin með nóg af þessari sumarbústaðarfærslu,, það er búið að redda bústað og hitt er seinnitímavandamálUllandi

Ég er annars bara hress en með fárlasna stelpu heima... Það er svo erfitt, en maður er bara með svo lítið hjarta þegar þessi kríli eru lasin... það er ekkert smá!!!

En hvernig er með þessar bumbulínur sem maður þekkir ætlar enginn að vera með bumbusíðu, ég er svo forvitinn og ég vil svo mikið fylgjast með???

Óver end át
Stella

Sumarbústaður fundinn ;)Skutlan

Ég er búin að redda bústað pjóurnar mínar. Bústaðurinn er rétt hjá Laugarvatni, og mér er sagt að hann sé fínn. Veit ekki alveg hef ekki séð myndir af honum, enn hún sagði mér að hann væri mjög fínn Koss

Hvað segið þið um það ???
Kv, Halla Rós

Hittingur 15.feb 2007Skutlan

Sælar skvísur og takk kærlega fyrir síðast:-) Ég vildi kanna viðbrögð ykkar með hittinginn 15 feb hvort ég mætti bjóða ykkur til mín í afmælisboð?  Ég á afmæli 14.feb og datt í hug að nýta þennan hitting í gómsæti fyrri ykkur:-) Hvað segið þið?

kv.Dídí

SumarbústaðurSkutlan

Jæja þá er stenfna tekin á bústað helgina 9-11 mars. En þar sem okkur vantar bústað þá auglýsi ég hérna með bústað. Þið stelpur sem eruð að vinna og eruð að borga í stéttarfélag viljið endilega ath hvernig bústaðarnir eru hjá ykkar stéttarfélagi ég hélt að ég væri í öðru stéttarfélagi en ég er í og þar eru bara ömurlegir bústaðir. Og helst værum við til í að fara hérna á austurlandi en skoðum nátturlega allt. Allar að ath þetta og láta mig svo vita.

Ég vil þakka kærlega fyrir hárkollu partýið það var náttúrlega bara gamana hjá okkir og mikið hlegið. Fult af myndum tekið EN ÉG VIL BARA KOMA ÞVÍ Á FRAM FÆRI AÐ EKKI SETJA MYNDIR HÉRNA Á BLOGGIÐ HELDUR SETJIÐ ÞÆR Á MYNDASÍÐURNAR YKKAR ÞVÍ ANNARS ÞARF STELLA AÐ BORGA FYRIR ÞÆR.

Og koma svo stelpur virkjum þetta blogg aðeins...

kv Hrabba pæja

Vantar pottþétt eitthvað eða einhvern!!Skutlan

Ég held að þetta virki þannig að allir fara inn á sama notendanafnið!! Án þess að ég sé 100% viss.. svo var ég að setja inn linka og síður og annað og ég er ekki viss um að  það séu allir þarna en þá bara segiði það, til að fá innskráningar dótið verði þá bara í bandi við mig á msn!!

Lov Stella

Skutlan

hæhæ allar saman ég ákvað að prófa að opna aðra síðu fyrir okkur hún á víst að vera alveg fínSaklaus
Takk fyrir samveruna í gær rosalega gaman að gera svolítið öðruvísi
Bestu kveðjur Stella

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Tilgangur

Hér ætlum við vinkonurnar að blogga um lífið og tilverununa og einnig gott að eiga góðan fjarskiptavettvang

Skemmtilegar síður

Leit

Ásthildur 25 ára

Klukkan

Könnun

Hvernig líst ykkur á??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...