Sumarbústaður fundinn ;)Skutlan

Ég er búin að redda bústað pjóurnar mínar. Bústaðurinn er rétt hjá Laugarvatni, og mér er sagt að hann sé fínn. Veit ekki alveg hef ekki séð myndir af honum, enn hún sagði mér að hann væri mjög fínn Koss

Hvað segið þið um það ???
Kv, Halla Rós

Athugasemdir

1
Alla skrifar:
VEI VEI líst vel á edda.. ?? Er edda sami og við vorum í síðast?... er pottur?
elska laugavatn :)
06. febrúar 2007 klukkan 17:40
2
Stella skrifar:
Já, flott en hvað eru mörg herbergi???
06. febrúar 2007 klukkan 20:21
3
Halla Rós skrifar:
Veit ekki alveg hvað það eru mörg herbergi enn það eru rúm fyrir 8.manns (svo ég býst við að það séu 3 herbergi)
og svo er svefnloft og þar eru 8 dýnur ;)
06. febrúar 2007 klukkan 22:51
4
Stella skrifar:
Já þá hlýtur þetta að vera stór búsaður!!
Ég hlakka svo til,, ég hlakka alltaf svo til!!! híhí ein komin í jólabúninginn:)
06. febrúar 2007 klukkan 23:43
5
Dagrún Fanný Liljarsdóttir skrifar:
Afhverju koma aldrei kvittin mín????????

Er heitur pottur?

er pláss fyrir sláturgerð?................djók
07. febrúar 2007 klukkan 08:27
6
Halla Rós skrifar:
Jóla hvað ;) híhíhíhí.....
Var að tala við eina sem var þarna síðustu helgi og hún sagði að þetta væri rosalega fínn bústaður, það er heitur pottur, þrjú svefnherbergi, eitt hjónarúm
og svo í hinum herbergjunum eru kojur, neðri kojurnar eru ein oh hálf breidd og efri þá bara venjuleg ;)
Það er örbygljuofn, vöfflujárn!!! thíhíhí(fannst þa svoldið skondið) og hún hélt að það væru um 12 sængur eða eitthvað, það er svefnloft líka, bústaðurinn er 60 fermetrar,
stór og fínn, stór verönd og flottar gönguleiði´r í kring ;)

Það þarf að sjálfsögðu að koma með lök og sængurföt, handklæði og FÖT (vill ekki hafa ykkur hálf berró, svo það sé á hreinu) Vá hvað ég er ofboðfyndin ;)
Enn já krúttu tútturnar mínar, held að þetta sé svona það helsta sko ;)
Love ya
07. febrúar 2007 klukkan 09:12
7
Alla skrifar:
BBWWWWAAAAHAHHAAHAHAHAHAHAHA góð Halla mín ;)

Ég pant sofa í hjónarúminu!! arrrgggggg.....

djók;)

líst vel á edda og hlakka svoooooo til :) veveiei

EN hvað kostar kvikindið?
07. febrúar 2007 klukkan 12:59
8
Halla Rós skrifar:
Ég ætla að sofa í hjónarúmin ;) nei nei mér er alveg sama hvar ég sef ;)

Hann kostar 5000 kr helgin ;) mjög ódýr ;)
07. febrúar 2007 klukkan 14:25
9
Alla skrifar:
flott!! þá þarf bara að fara að setja niður hverjur ætla að fara svo við vitum hvað þetta kostar á mann..
Hvað með Karó og Drífu, Dídí, Eló.. ekkert heyrst í þeim varðandi þetta mikla og alvarlega mál hehe
07. febrúar 2007 klukkan 15:54
10
Halla Rós skrifar:
Já það liggur svo sem ekkert á þannig ;)

Ég er alveg pollróleg allavega, þarf bara að borga bústaðinn um leið og ég sæki lykilinn ;) sagði hún mér í morgun.

Enn það væri samt sem áður bara gaman að vita hverjir koma með í bústaðinn ;)
07. febrúar 2007 klukkan 16:01
11
Stella skrifar:
Ég fer ekki í bústað nema að ég fái hjónarúmið!!!





Nei djók,, en mér finnst rosalega gott aðfá að sofa í rúm, lenti í því í einni Akureyrarferðinni minni að við stelpurnar leigðum saman íbúð og ég þurfti ein að sofa á gólfinu og þar að auki ekki inní neinu herbergi, heldur bara á gangi eða stofu og það voru silfurskottur.... mig klæjaði mikið þegar ég vaknaði!! Sennilega meira ýmindun en þetta var ferlega óþægilegt;)
07. febrúar 2007 klukkan 16:55
12
Dagrún Fanný Liljarsdóttir skrifar:
OJBARA ég sef í RÚMI það er á hreinu, eftir þessa sögu Stella....(alveg sama hvaða rúmi sko)

og hvað meira, hvað eru þið búnar að plana með ferðina meira
07. febrúar 2007 klukkan 19:36
13
Alla skrifar:
Átti þetta ekki að vera svona heilsuferð?? borðaður hollur matur og ekkert áfengi eða voða lítið var það ekki ??
gönguferðir, sund og jóga... :) alvöru afslöppunarhelgi ?? var það ekki upprunalega planið??
07. febrúar 2007 klukkan 19:55
14
Stella skrifar:
Já ég er til í það!!!
En dagrún það er samt alveg hægt að sofa á svefnlofti eða troða í rúmin,, held að silfurskottur séu meira í raka og helst á gólfum;)
Ég er alveg til í jóga og sund og borða holla og næringarríka fæðu,,, eigum við ekki bara að ákveða það að það verði bara ekki keypt sælgæti??????
Drífa kemur bara og tekur okkur í jóga og við verðum rosa flottar og fínar!!!!
07. febrúar 2007 klukkan 20:04
15
Dídí skrifar:
Hæ hó, já ég veit ekki með mig. Kannski kem ég ef lærdómurinn tekur ekki þessa helgi frá mér! Ég er nefnilega líka að fara helgina áður til London í boði Stefáns sem afmælisgjöf og svona helgarferð áður en stelpan verður mamma...omg....hiihihi en þetta verður eflaust svaka stuð að vana efast ekki um það. :-D
07. febrúar 2007 klukkan 21:48
16
Halla Rós skrifar:
Ekkert eitthvað helvítis heilsukjaftæði. Þið getið haft það þannig heima hjá ykkur, því um helgar má borða nammi og svona, laugardagar eru nammidagar.
Ef þið hafið ekki heyrt það .!!!!!! Hana nú, annars kem ég ekki með í bústað, ég ætla sko að fá mér í glas og svona það er nokkuð ljóst.

Enn ef þið viljið það ekki getið þið bara sleppt því, mig langar....
07. febrúar 2007 klukkan 22:26
17
Halla Rós skrifar:
Hahaha..............
07. febrúar 2007 klukkan 22:29
18
Stella skrifar:
heheheheheheheh
Hver og einn ákveður þetta fyrir sig;)
08. febrúar 2007 klukkan 09:48
19
Alla skrifar:
já auðvitað.. þetta var líka bara hugmynd . en ég held að ég taki bara heilsuhelgi á þetta.. og komi til baka endurnærð;)
08. febrúar 2007 klukkan 14:27
20
hrabba skrifar:
Bara svo að það sé á hreinu þá ætla ég að sofa í rúmi svaf síðast á gólfinu eða tvær í 90cm rúmi þannig að ég fæ pottþétt rúm og ég er sko ekki að djóka ;)
08. febrúar 2007 klukkan 14:47
21
hrabba skrifar:
já líka hafa eitt á hreinu ég ætla ekki að lifa á einhverju grasi og svoleiðis alla helgin glætan spætan þoli ekki svona heilsukjæftæði sé ákveðið fyrir mig vil ákveða þetta sjálf hehehe
08. febrúar 2007 klukkan 14:49
22
Dagrún Fanný Liljarsdóttir skrifar:
Ég er bara til í hvað sem er, ég bara það sem er á borðum. Getum alveg haft eitthvað smá áfengi enn bara kanski ekki jafn mikið og síðast eða þá bara annan daginn. hahahaha eða allavegana ég:) það var nú samt svo gaman þá...
08. febrúar 2007 klukkan 15:54
23
hrabba skrifar:
það hefur þetta bara hver og einn eins og hann vill hafa. En mikið hvað mig hlakkar til úúúúlllllllllllllllllllllllaaaaaaaaaaaaaaaaaa. það verður svo gott að komast í smá húsmæðrafrí og vera með vinkonum sínum og haga sér eins og fífl hehehehehe, borða góðan mat og vera í góðum vinahóp.

Get ekki beðið....
08. febrúar 2007 klukkan 19:14
24
Alla skrifar:
já ok.. þá verðum við stella amk í grasinu og heilsunni :) og halla og hrabba í sukkinu... ojojojojojojoj....
08. febrúar 2007 klukkan 20:02
25
Stella skrifar:
hehehehehehhe
ég er samt alveg sammála með drykkjumálin,, mar þarf ekki að vera á skralli alla helgina;)
08. febrúar 2007 klukkan 20:36
26
Halla Rós skrifar:
aha !!!!!!!!!
08. febrúar 2007 klukkan 22:47

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Tilgangur

Hér ætlum við vinkonurnar að blogga um lífið og tilverununa og einnig gott að eiga góðan fjarskiptavettvang

Skemmtilegar síður

Leit

Ásthildur 25 ára

Klukkan

Könnun

Hvernig líst ykkur á??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...