90's ???Skutlan

Þú ert 90´s kid ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]  (Baby? ) hahah

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið... ( það var sko AÐALsportið )

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar... ( ha? )

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið.. ( hahaha á ennþá nokkrar kassettur með blönduðum útvarpslögum..sama laginu kannski aftur og aftur og aftur:) )

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl ( játs! þegar það fylgdi jójó með coca cola.. og fanta og sprite :p )

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana... ( haha pónýhestarnir mar, átti póný hús og hesta og alles...meirað segja heila hárgreiðslustofu fyrir hestana )

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum.. (namm, þeir voru góðir ! )

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara (man þegar ég fékk fyrst einn slíkan, svona lítinn ferðaspilara..setti svo spólu í kassettutækið mitt og tengdi við ferðaspilarann svo ég gæti spilað upphátt :p )

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill... ( hahaha gulur, rauður, grænn eða blár? )

Þú áttir tölvugæludýr (já og mar þurfti að gefa því að éta og allt svo það dræpist ekki! )

...eða Furbie (  á hann ennþá:p held samt að hann sé batterýslaus greyið)

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir ( jiiiiiiii keypti seríuna í dk um daginn á dvd!!!!! og ekki má gleyma kærleiksbjarnabúningnum mínum, þegar ég var yngri átti ég sko allt sem tengdist kærleiksbjörnunum )

Þú safnaðir lukkutröllum ( jújú enda verið kölluð lukkutröll hrumpf )

Og áttir vasadiskó (og á það ennþá! )

Þú kannt Macarena dansinn utanað (hver kann það ekki?)

Þú veist af hverju 23 er kúl tala (  hell yeah, átti meirað segja körfuboltaspjöld sem ég bíttaði í gríð og erg, geymd í fallegri möppu )

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var.. (man meirað segja þegar sms varð fyrst vinsælt..það var ókeypis heilt sumar og það var sko ekki sparað sendingarnar skal ég segja ykkur)

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið (Maður var bara ekki maður með mönnum nema eiga eina slíka)

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!


Já ég var sko 90´s kid! sjett!

Alla sín :)

Athugasemdir

1
hrabba skrifar:
Já há ég man eftir þessu öllu saman, en sumt fannst mér barnalegt á sínum tíma en ég er líka svo gömull hehehehehehehehhehehehe
09. febrúar 2007 klukkan 14:26
2
Dagrún Fanný Liljarsdóttir skrifar:
Já ég man svo sannarlega eftir flestu hahahahah
09. febrúar 2007 klukkan 15:55
3
Halla Rós skrifar:
Já ég man sko líka eftir flestu af þessu, enn ég kann ekki macarena dansinn ennþá, hver býður sig fram í kennslu ??
10. febrúar 2007 klukkan 08:47
4
Ásthildur skrifar:
Ha ha ha, já þetta voru sko góðir tímar, ég er meira að segja með ice lagið sem símhringingu hjá mér núna;)
10. febrúar 2007 klukkan 11:34
5
Stella skrifar:
hehehhehe
Guð ég held að ég muni eftir næstum öllu þessu sem er nefnt hérna;)
11. febrúar 2007 klukkan 10:28

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Tilgangur

Hér ætlum við vinkonurnar að blogga um lífið og tilverununa og einnig gott að eiga góðan fjarskiptavettvang

Skemmtilegar síður

Leit

Ásthildur 25 ára

Klukkan

Könnun

Hvernig líst ykkur á??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...