Reyna að vera duglegar að blogga!!Skutlan

Sælar elsku skvísurr,,, ég er að vona að það sé nú hægt að halda svolítilli hreyfingu á blogginu!
Ég skellti mér mér út að borða með vinnunni á föstudaginn og það var ekki meira né minna en The pörl... Mér fannst mjög gaman og hefði sennilega fundist aðalrétturinn æðislegur ef ég hefði ekki verið búin að borða 2 rétti, var sko í 4 rétta en auðvitað var þetta allt voða fínt og flott!!
Svo fengum við þær slæmu fréttir ég og Alla að dagmamman okkar lenti í bílslysi um helgina og fótbrotnaði, ég er búin að heyra um eitt bílsslys um helgina og það var í Bökkunum og þar ók fullur maður á kyrrstæðan bíl og einn farþeginn í kyrrstæða bílnum fótbrotnaði þannig maður er hræddur um að það hafi verið þeirra slys.. alveg hræðilegt hreint að lenda í svona. En dagfaðirinn slapp betur og ætlaði að reyna að opna á miðvikudaginn en ég sé samt ekki alveg að hann geti það greyið með stórslasaða konuGráta
En svona er víst lífið og slysin gera ekki boð á undan sér!!
Ég hringdi í innritunarfulltrúa leikskólanna og sagði að nú þyrfti bara eitthvað að fara að gerast, ég er því miður ásamt öðrum í þeirri stöðu að ég get ekki verið án daggæslu fyrir skinnið mitt svo að ég ætla að hringja aftur á morgun því hún sagðist ætla að fara beint í okkar mál og reyna að redda þessu sem allra fyrst!!
Veriði svo duglegar að blogga............
Það vita nú flest allir leyniorðið þannig að látiði það bara berast til þeirra sem ekki hafa fengið ..
LÖV STELLA

Athugasemdir

1
Halla Rós skrifar:
Ohhh hvað ég vona að hún komist á leikskóla sem fyrst, og leiðinlegt að heyra með þetta slys, alveg hreint ömurlegt :(
12. febrúar 2007 klukkan 23:42
2
Hræðilegt að heyra með slysið, enn gott samt að það fór ekki verr. Helv... hálfitar að keyra svona druknir....

Enn til hamingju með leikskólaplássið
14. febrúar 2007 klukkan 23:22

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Tilgangur

Hér ætlum við vinkonurnar að blogga um lífið og tilverununa og einnig gott að eiga góðan fjarskiptavettvang

Skemmtilegar síður

Leit

Ásthildur 25 ára

Klukkan

Könnun

Hvernig líst ykkur á??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...